21.9.2008 | 08:05
ANDARNEFJA HVALUR - MYNDIR
Ég var með Japani frá japönsku tímariti í ferð um Suðurlandið snemma á þessu ári og í lok ferðarinnar fór ég með fólkið niður að sjó rétt hjá Stokkseyri. Þar hafði skömmu áður rekið á land hval eða andarnefju (Hyperoodon ampullatus) og má sjá myndir af henni hér.
Hvalinn rak á fjörur rétt fyrir neðan Knarrarósvita sem er á Suðurlandinu rétt hjá Stokkseyri. Mælingar sýna að u.þ.b. 40-50 þús. dýr eru á hafssvæðinu umhverfis ísland á sumrin. Picture of Icelandic whale found on the south coast line close to Stokkseyri in Iceland. (C) WWW.PHOTO.IS Kjartan P. Sigurdsson. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það er greinilegt að einhverjir fuglar er byrjaðir að gæða sér á hvalnum enda mikill og góður matur þar á ferð.
Ekki er óalgengt að hval reki á land við strendur landsins. Andarnefja lifir aðallega á smokkfiski. Hún er mjög forvitin og er auðvelt að lokka hana að með hljóðum. Hún er einstaklega félagslynd og trygglynd og yfirgefur ekki særðan félaga fyrr en hann deyr. Andarnefjur eru mjög öflugir kafarar og geta kafað niður 1000 m dýpi og verið 1-2 kl.st. í kafi. Andarnefja er farhvalur og aðeins hér við land á sumrin. Picture of Icelandic whale found on the south coast line close to Stokkseyri in Iceland. (C) WWW.PHOTO.IS Kjartan P. Sigurdsson. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér sést svo betur nefið á hvalnum eða andarnefjunni sem fannst við suðurströndina rétt hjá Knarrarósvita. Andarnefja er tannhvalur. Nafn sitt dregur hún af höfuðlaginu, trýnið er mjótt og ennið hátt og kúpt eins og sjá má
Andarnefjan er grásvört á litinn og heldur ljósari að neðan en á bakinu. Með aldrinum þá lýsist litur hennar. Algeng lengd er 7-9 m og þyngdin um 6-8 tonn. Kýrin er talsvert minni en tarfurinn. Kvendýrin eru tannlaus. Aldur 40-60 ár. Picture of Icelandic whale found on the south coast line close to Stokkseyri in Iceland. (C) WWW.PHOTO.IS Kjartan P. Sigurdsson. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Knarrarósviti sem er þarna rétt hjá er 26 metra hár og svæðið heitir Knarrarós sem er rétt austan við Stokkseyri.
Knarrarósviti var byggður árið 1939. Picture of Knarrarós lighthouse that was built in 1938. It is the tallest building in southern iceland. It is close to the whale that was found on the south coast line close to Stokkseyri in Iceland. (C) WWW.PHOTO.IS Kjartan P. Sigurdsson. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég átti í einhverjum erfiðleikum með að átta mig á því hvernig orðið væri skrifað en það er víst beygt svona andarnefja, andarnefju, andarnefju, andarnefju og í fleirtölu andarnefjur, andarnefjur, andarnefjum, andarnefja
Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Dauð andarnefja í Höfðahverfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Dægurmál, Ljósmyndun, Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:09 | Facebook
Athugasemdir
Flottar myndir. Er búið að skera í dýrið þarna? Líkist allavega skurði eftir hníf þarna á maganum og nokkrum öðrum stöðum. En ég hjó líka eftir smá villu að ég tel hjá þér. allavega er ekki sama byggingarár á vitanum á ensku og íslensku sjá hér "Knarrarósviti var byggður árið 1939. Picture of Knarrarós lighthouse that was built in 1938." En annars hlítur önnur dagsetningin að vera rétt
Stefán Þór Steindórsson, 22.9.2008 kl. 08:22
Humm ... þú segir nokkuð, núna þarf að leggjast í rannsóknarvinnu aftur varðandi þetta ártal en í Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu er talað um ártalið 1939 og er það vefur sem er stöðugt uppfærður af fullt af fólki :|
En ég tók ekki eftir þessum skurðum sérstaklega fyrr en þú hafðir orð á því, hélt í raun að hann væri hreinlega að rifna. Líklegt er að það séu tekin sýni hjá Hafró um leið og þeir frétta af svona hvalreka. Spurning hvort að þessir skurðir séu ættaðir frá slíkum rannsóknum?
En sökum þess hvað má veiða fáa hvali í rannsóknarskyni, þá er alveg eins líklegt að þeir noti öll tækifæri sem bjóðast til að taka sýni þegar svo ber í veiði.
En annars takk fyrir.
Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.9.2008 kl. 10:20
Góðan dag.
Ykkur til upplýsinga þá fór sýnataka fram þann 15. apríl!
Kveðja
Sverrir líffræðingur á Hafrannsóknastofnun
Sverrir Daníel Halldórsson (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 16:19
... og myndirnar voru teknar 29. apríl svo að þetta getur allt passað og takk fyrir flott svar :)
Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.9.2008 kl. 16:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.