11.2.2008 | 07:05
JARÐGÖNG FYRIR BÍLAUMFERÐ Í REYKJAVÍK - HUGMYNDIR OG KORT
Styttum akstursleiðir, spörum tíma og minkum mengum. Færum bílaumferð og þungaflutninga í jarðgöng í stað þess að aka í gegnum íbúðabyggðirnar.
Minkum álagið á vegakerfi borgarinnar með því að stytta allar leiðir. Spörum flókin gatnamót og flókna brúarsmíði.
Höfum umferðina innandyra og blásum á það tíðarfar sem ríkt hefur hér síðustu daga með um 300 bíla tjóni á einni viku!
Samkvæmt upplýsingum Samgönguráðs um ferðavenjur sumarið 2007, þá er meðalferðatíminn 12 mínútur sem tekur höfuðborgarbúa að fara til vinnu. Meðalfjarlægð milli heimilis og vinnu er 5,7 km sem gefur ferðahraðann 28,5 km.
Íbúar höfuðborgarsvæðisins verja að meðaltali 45 mínútum á virkum degi í bíl. Niðurstaðan er að það sé best að leysa toppa í umferðarálagi með umbótum á stofnbrautakerfi, tíðari og ódýrari strætóferðum og sveigjanlegum vinnutíma.
En jarðgöng fyrir bílaumferð eins og sjá má á eftirfarandi teikningu gæti líka verið lausn á vandanum.

Hugmyndir að jarðgöngum fyrir bílaumferð í Reykjavík (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
1) Bora einföld göng frá miðbæ Reykjavíkur að Smáralind er um 5.5 km tæki 70 - 225 daga. (Tjörnin - Öskjuhlíð 1.2 Km, Öskjuhlíð - Fossvogur 2.1 Km og Fossvogur - Smáralind 2.1 Km)
- Þessi göng myndu minka mikið umferðina um gatnamótin Miklubraut/Kringlumýrabraut
- Það er mikið mál að komast yfir á svæðið fyrir þá sem þurfa að fara frá Fossvoginum yfir í Smárann nema fara miklar krókaleiðir í gegnum byggðina í Kópavogi.
2) Bora einföld göng frá Sundahöfn að Smáralind er um 6 km tæki 75 - 246 daga.
- Þessi göng myndu geta tekið á móti umferð sem kæmi m.a. eftir göngum sem lægju frá Laugarnesi um Viðey út á Kjalarnes
- Göngin myndu spara brúargerð við Miklubraut
3) Bora einföld göng frá Laugarnestanga í gegnum Viðey, Geldingarnes, Álfsnes að Kjalarnesi er um 10 km tæki 125 til 410 daga.
- Þessi göng mætti síðan tvöfalda eftir þörfum eftir því sem umferð myndi aukast.
- Þessi göng myndu líklega kosta svipað og tillagan sem búið er að leggja til að fari tvöföld út í Grafarvog með flóknu vegarkerfi
- Þessi framkvæmd tekur mun skemmri tíma og klárar að auki leiðina alla leið út á Kjalarnes fyrir mun minni upphæð og býður að auki upp á stóraukið framboð á byggingarland niður við sjó.
4) Bora einföld göng frá Strandvegi í Grafarvogi að gatnamótum Laugarvegs og Kringlumýrarbrautar er 4 km tæki 50 - 164 daga.
- Mun einfaldara er að útbúa einföld göng út í Grafarvog fyrir mun minni umferð í stað þess að taka alla norður umferðina í gegnum byggðirnar sem eru með ströndinni á leið út á Kjalarnes.
5) Bora einföld göng frá Geldinganesi upp á Vesturlandsveg er um 4 km tæki 50 - 164 daga.
- Þessi göng eins og flest göngin gera er að minnka umferð í gegnum byggðarkjarna og færa umferð beint á þá staði sem henni er ætlað að fara. Svona leið myndi stytta verulega þá vegalengd til Reykjavíkur fyrir þá sem búa í Grafarvogi. Einnig gæti hluti af umferð eins og frá Mosó komið sömu leið.
6) Bora tvöföld göng við Miklubraut frá Kringlunni að Snorrabraut er um 1.2 Km eða samtals 2.4 Km tæki 25 - 80 daga.
- Jarðgöng frekar en opin stokkur hlýtur að vera einfaldari og þægilegri framkvæmd þegar upp er staðið.
7) Borga göng frá Sæbraut út á Granda eða undir Geirsgötuna er aðeins 1.2 Km tæki 10 - 40 daga að bora. - Augljós kostur að geta flutt hraða umferð framhjá miðbænum beint út á Granda og Seltjarnarnes.
8) Bora göng frá Smáralind undir Arnarneshæð út á Hafnarfjarðarveg er um 2.6 Km og tæki 30 - 90 daga.
- Þessi leið myndi flýta mikið umferð sem væri að koma eftir Hafnarfjarðarvegi t.d. á leið út úr bænum.
9) Bora göng frá Breiðholtsbraut að Smáranum sem er um 2.6 Km tæki 30 - 90 daga.
10) Bora göng frá Suðurgötu - undir Bessastaði og áfram út að Álverinu er um 9.8 Km tæki 120 til 400 daga.
- Hér gæti verið hátt í 10 Km stytting á leiðinni frá miðbæ Reykjavíkur til Keflavíkur í stað þess að láta alla bílaumferðina renna í gegnum byggðirnar.
Þá er bara næsta mál á dagskrá - það er að fara að fjárfesta í bor :)
Kjartan
Tæknimyndir ehf
WWW.PHOTO.IS

|
77% fara á bíl til vinnu eða í skóla |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Samgöngur | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Vísindi og fræði | Facebook

andrigeir
annaeinars
annalilja
apalsson
aingolfs
agbjarn
arnigunn
ormurormur
asdisran
safinn
baldvinj
pelli
berglist
kaffi
birgitta
sigrunb
blogger
braxi
gattin
bryn-dis
bryndisisfold
brynja
brylli
brandarar
dofri
kvotasvindl
eggman
jari
einari
jaxlinn
emilhannes
erla1001
kamilla
eydis
ea
uthlid
fridaeyland
africa
kransi
gretaulfs
gudni-is
ofurskutlan
gudbjornj
fifudalur
mosi
godpool
gurrihar
faraldsfotur
gudrunmagnea
tilveran-i-esb
skulablogg
gbo
tudarinn
hallgrimurg
harpaelin
heidistrand
skessa
heidathord
blekpenni
diva73
herdis
himmalingur
hjorleifurg
hjorturgud
maple123
don
hreinsamviska
horduragnarsson
ingolfurasgeirjohannesson
jeg
jogamagg
hansen
joiragnars
jonaa
jaj
jonasantonsson
jas
jonhalldor
fiski
jonr
skodunmin
jonsnae
prakkarinn
nonniblogg
jon-o-vilhjalmsson
drhook
karlol
kari-hardarson
kentlarus
kjarrip
kreppukallinn
bubot
krads
lauola
larahanna
lara
liljabolla
lillagud
lindalea
lindagisla
fgh123
magnusvignir
maggaelin
elvira
marinogn
marinomm
gummiarnar
martasmarta
manisvans
methusalem
morgunbladid
mortenl
nanna
alvaran
omarragnarsson
huldumenn
svarthamar
skari60
pallthayer
ljosmyndarinn
peturgauti
proletariat
hnodri
raudka
totally
siba
duddi9
siggi-hrellir
sij
siggivalur
zunzilla
skastrik
luther
snorrihs
shv
steinibriem
eyjann
saemi7
theodorn
toro
toshiki
daystar
vefritid
eggmann
vilbogi
vilhelmina
postdoc
harleyguy
steinisv
valli57
thomol
ovinurinn
steistei
aevark
Athugasemdir
Heimsku Reykvíkingar. Skammist þið ykkar! Drullið þið ykkur til að nota strætisvagna, frekar en að kafna af menguninni úr bíldruslunum ykkar!!!
Oli (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 07:28
Hví ekki að nota öll þessi jarðgöng undir neðanjarðarlestir bara? :) Óþarfi að troða öllum bílunum þangað og ekki minnka svona jarðgöng mengunina að neinu leyti því útblásturinn frá bílunum hverfur ekki bara með gangnagerð...
Almenningssamgöngur í Reykjavík eru einfaldlega til háborinnar skammar, það er ein meginástæðan fyrir því að fólk tekur á sig alla byrðina af að eiga og reka bíl/bíla.
Rebekka (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 09:40
Ef þú skoðar hugmyndir sem að ég kom með tveimur færslum áður, þá eru þar hugmyndir að jarðlestarkerfi fyrir Reykjavík og nágrenni. Ég mátti til með að koma með þessar hugmynd strax á eftir hinni til að það væri hægt að horfa á þær tvær í betra samhengi.
En ég er ekki frá því að það væri tilvalið að leggja eitthvað af þessum göngum til að létta aðeins á umferðinni.
En svo er líka önnur lausn eins og fyrir hann Óla úrilla, en það er að hætta að flytja alla á mölina og í staðin að reyna að hjálpa landsbyggðinni aðeins meira þó ekki væri nema að hætta að taka af þeim lífsbjörgina!
Kjartan Pétur Sigurðsson, 11.2.2008 kl. 10:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.