Önnur spennandi frétt í orkumálum Íslendinga

Ég var á ferð með skemmtilegum hóp í gær sem leiðsögumaður. Þegar ég var að fletta í gegnum vefmiðlana í morgun, þá rakst ég m.a. á þessa frétt hér:

Verksmiðja sem breytir hverareyk í bensín!


frétt af vísi.is um framleiðslu á jarðeldsneyti úr útblæstri frá álverum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Ef satt reynist, þá er hér á ferðinni stórkostleg tækifæri í orkumálum framtíðarinnar.

Spurning hvort að íslendingar séu að stefna í að verða 100% sjálfbærir í orkumálum

Kjartan
WWW.PHOTO.IS


mbl.is Vetnisstöð vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Það er nú það. Þá rís sem sagt bensínverksmiðja við Bláa lónið og kannski í framhaldinu fleiri "umhverfisvænar" virkjanir og álver svo við getum verið 100% sjálfbær.

Emil Hannes Valgeirsson, 2.12.2007 kl. 12:04

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Ég myndi nú halda að það væri ansi stórum áfanga náð ef það væri einhver möguleiki á að endurvinna CO2 frá orkufrekum iðnaði í stað þess að blása því beint út í loftið eins og nú er gert!

Mig grunar nú að Hafnfirðingar yrðu ansi kátir ef allt CO2 sem álverið losar út í loftið hyrfi nánast með öllu.

Er það ekki umhverfisvæn framkvæmd?

Í raun eru þarna á ferð stórkostlegar hugmyndir, ef þær ganga upp, sem í framtíðinni gætu haft gríðarleg áhrif á orkunotkun heimsins.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 2.12.2007 kl. 13:09

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þetta er sjálfsagt merkilegt en það er ágætt að skoða allar hliðar málsins. Ég er bara hræddur um að þetta efli virkjunar- og álverssinna, en kannski OK að setja upp svona framleiðslu þar sem verksmiðjur eru nú þegar. Það er annars ekki CO2 sem veldur mengunn í Hafnarfirði þar eru önnur efni á ferðinni. CO2-útblástur hefur ekki talist vera mengandi en veldur gróðurhúsaáhrifum sem er hnattrænn vandi, þessi nýja tækni væri framlag til að minnka þann vanda.

Emil Hannes Valgeirsson, 2.12.2007 kl. 14:59

4 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það er staðreynd hvort sem okkur líkar betur eða verr, að þá er heimurinn að að tæknivæðast. Á sama tíma er neyslan og orkusóun að aukast.

Því miður hefur ríkt stöðnun á mörgum sviðum.

Ef við skoðum bílinn og bílvélina, þá hefur sú hönnun verið nánast óbreytt í meira en heila öld!

Henry Ford kemur með Ford model T á markaðinn árið 1908 og hvað hefur gerst síðan?

Því ekki að reyna að nota alla þessa menntun og tækni í dag til að laga margt að því sem miður hefur farið?

Þeir sem oft eru harðasti í gagnrýninni eru oft á sama tíma stór notendur af þessari sömu tækni. Ég hugsa að ein besta leiðin til að berjast gegn öllum þessum nútíma váum er að reyna að koma með eitthvað varanlegt og betra í staðin.

Koltvísýringur (CO2) er að magni til langveigamest þeirra lofttegunda sem valda svokölluðum gróðurhúsaáhrifum. Styrkur CO2 í andrúmsloftinu hefur aukist um 30% á síð-ustu 200 árum.

Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi er lítil á heimsvísu, eða minna en 0,05% af losun iðnríkjanna.

Ef það er til tækni til að binda CO2, þá væri það hið besta mál og ekki er verra ef hægt er að fá eitthvað aukalega út úr dæminu í leiðinni.

Svo þarf að fara að skoða möguleika á að finna nýjar aðferðir til að vinna SO2 frá gufuaflsvirkjunum.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 2.12.2007 kl. 18:05

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Flott verð í sambandi!

Kjartan Pétur Sigurðsson, 4.12.2007 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband