Færsluflokkur: Vefurinn
22.9.2008 | 16:34
FJÖLSKYLDUMÁL ERU LÍKA FLÓKIN - DÆTUR HAFA ÓTRÚLEG VÖLD!

Snyrtistofa Dögg - Kristín Dögg Kjartansdóttir (smellið á mynd til að komast á heimasíðu Kristínar)
En annars er þetta ekki svo slæm auglýsing :)
![]() |
Flókið borvélamál |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.10.2007 | 09:27
Spurning um að fara að blogga aftur?
Ég tók mér smá blogg hlé í 2-3 mánuði. Mig er farið að kitla í puttanna aftur, enda af nógu af taka til að blogga um.
Ég á mér mörg áhugamál og spurning hvort að það sem að ég er að vinna í þessa dagana getur orðið eitthvað stórt - hver veit. Ef svo verður, þá mun ég hafa lítið annað að gera næstu árin en að sinna því sem var upphaflega aðeins áhugamál.
Kem með nánari upplýsingar á næstu dögum.
Kjartan
p.s. þetta heitir að byggja upp spennu :)
![]() |
Áhugamálið orðið að aðalstarfinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 09:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2007 | 17:04
Kröfluvirkjun - myndir og kort
En sprengigígurinn Víti liggur í hlíðum Kröflu og myndaðist í sprengigosi í upphafi Mývatnselda 1724-1729

Víti í hlíðum Kröflu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það mátti litlu muna að Kröfluvirkjun yrði ekki að neinu eftir að gos hófst í Leirhnjúk og við Kröflu í röð af 9 gosum frá 1975 til 1984

Leirhnjúkur við Kröflu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hver virkjun þarf fjölda borhola eins og þessi mynd sýnir og sem dæmi, þá er þegar búið að gefa leyfi fyrir um 40 borholum á svæðinu við Hellisheiði. En hver hola er að gefa um 5 megavött og er stefnt að því að tífalda þessa orku með því að bora núna enn dýpra. Eða í stað um 2000 metra djúpar holur þá er stefnt að 4-5.000 metra djúpum holum.

Borholur við Kröflu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má svo sjá virkjunina sjálfa við Kröflu

Kröfluvirkjun (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kort af Kröflu, Kröfluvirkjun, Leirhnjúk og Víti

Krafla, Kröfluvirkjun, Leirhnjúkur, Víti (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
![]() |
Fyrsta djúpborunarholan boruð við Kröflu á næsta ári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)