LAUFÁS KIRKJUSTAÐUR - MYNDIR

Í Laufási í Grýtubakkahreppi hefur verið byggð upp flott aðstaða fyrir ferðamenn og er í dag rekið þar kaffihús, safn og falleg kirkja.

Hér má sjá flott samkomuhús sem býður upp á kaffi og heimabakað bakkelsi eins og það gerist best í sveitinni.

Kaffihús og samkomuaðstaða fyrir ferðamenn í Laufási (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Í Laufási er uppgerður torfbær sem gerður hefur verið að myndarlegu safni

Móttaka og afgreiðsla fyrir ferðamenn í Laufási (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Auk kaffiaðstöðu, þá geta ferðamenn keypt ýmsan varning og íslenskt handverk í Laufási

Móttaka og afgreiðsla fyrir ferðamenn í Laufási (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Þegar inn í bæinn er komið, þá má sjá húsgögn og annan búnað frá byrjun síðustu aldar

Húsgögn frá byrjun síðustu aldar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Þarna má sjá uppgert hlóðaeldhús að íslenskum sið, en svona eldhús voru til í mismunandi útfærslum

Hlóðaeldhús að gömlum íslenskum sið (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Allur matur var unnin á heimilinu og hér má sjá aðstöðuna þar sem ýmsar vörur voru unnar úr kúamjólkinni.
Hér var rjóminn skilin frá mjólkinni og eftir sat undarennan sem var notuð til drykkjar, skyrframleiðslu og til að geyma súrmat í.
Úr rjómanum var strokkað smjör og einnig var búinn til ostur ásamt öðru góðmeti.

Aðstaða til að vinna ost, smjör, skyr og fl. úr kúamjólk (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Það er ekki langt síðan svefnaðstaða flestra Íslendinga leit svona út. Svefnherbergi þess tíma var kallað baðstofa.

Baðstofa á safninu í Grýtubakkahreppi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Laufáskirkja björt að innan, snyrtileg og einföld að allri gerð.

Laufáskirkja í Grýtubakkahreppi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Handverk frá sveitungum er selt í byggingu sem er til hliðar við safnið

Handverk og hannyrðir eftir sveitunga í Grýtubakkahreppi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


og svo í lokin, þá má sjá hér loftmynd af svæðinu sem um ræðir í fréttinni sem deilurnar snúast um

Loftmynd af Laufási í Grýtubakkahreppi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Við skulum vona að kirkjunnar menn láti fjölskylduna ekki út á guð og gaddinn og sýni sitt kristilega innræti í þessu máli.

Kjartan
WWW.PHOTO.IS


mbl.is Gert að flytja húsið frá Laufási
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergur Thorberg

Frábært framtak Kjartan.

Bergur Thorberg, 8.2.2008 kl. 00:00

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Síðan hvenær hefur Kirkjan kristilegt innræti?

Lára Hanna Einarsdóttir, 8.2.2008 kl. 00:04

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Gerði prestssonurinn ekki samning, sem hann mun hafa ákveðið að gera í samráði við kirkjuna? Var honum alls ókunnugt um ákvæði samningsins .... eða

Það er erfitt að koma auga á hræsnina í því að óska þess að menn virði samninga þá sem þeir gera, án allrar þvingunar. Nú er meira að segja all langur tími liðinn síðan sr.Pétur andaðist. Er ekki bara komið að því að menn efni ákvæði samningsins ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 8.2.2008 kl. 02:23

4 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Eins og sjá má á myndunum, þá er eftir einhverju að slægjast! Öll sú starfsemi og vinna sem þarna má sjá er líklega ekki auðvelt að labba frá bara sí svona - því miður.

Er ekki málið að reyna að semja og finna farsæla lausn á vandanum í stað þess að sprengja upp lítið samfélag með látum.

Snýst málið ekki meira um þá sem þarna búa fyrir frekar en að utanaðkomandi aðilar séu sífellt að setja sig á háann hest og skipa öðrum fyrir.

Er ekki nóg komið með að þurfa að fjarstýra öllu frá Reykjavíkinni?

Brauðið er eftirsótt - það er ekki spurning og margur vill meina að hans tími sé kominn!

Kjartan Pétur Sigurðsson, 8.2.2008 kl. 07:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband