Það er auðvelt að vera leiðsögumaður á íslandi

Þú þarft í rauninni lítið að segja, landið sér um að selja sig sjálft, nóg er að horfa á landslagið líða hjá þegar verið er að ferðast um hið fölbreytta landslag á ferð sinni um landið.
Á einum degi er hægt að skoða ótrúlegan fjölda af náttúrufyrirbærum sem venjulega tæki mun meiri tíma að komast yfir í öðrum löndum.

Svo eru ekki endalaus tré að skyggja á allt og fá því víðátturnar að njóta sín mun betur hér en víða annars staðar og ekki má gleyma því að á einum degi er hægt að komast yfir jarðsöguleg fyrirbæri sem liggja á aldrinum frá 0 til 20 milljón ára.


mbl.is Jodie Foster hrifin af Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Heyrðu nú mig, varstu nokkuð að vinna í úrhellisrigningunni í gær? Á svoleiðis dögum og í þoku má leiðsögumaðurinn puða við að búa til stemningu. En ég er hjartanlega sammála þér með trén, þvílík mildi að þurfa ekki þola þau í stórum stíl.

Berglind Steinsdóttir, 13.9.2007 kl. 15:53

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Hæ Berglind,

Var annars á ferð með hóp fyrir stuttu í þeirri mestu hellidembu sem ég hef upplifað í langan tíma. Byrjuðum á að ganga upp Reykjadal fyrir ofan Hveragerði þar sem hópurinn baðaði sig í heitum læknum. Síðan var haldið áfram austur og inn á Sólheimajökul þar sem gengið var á ís í enn meiri rigningu og þegar upp var staðið þá var ekki þurr þráður eftir á neinum í ferðahópnum :)

Þótt ótrúlegt megi virðast, þá voru allir MJÖG ánægðir. Enda er fólk komið hingað til að "upplifa".

Þær ferðir sem að þú manst sjálf best eftir, eru líklega þær sem þú virkilega þurftir að takast á við náttúruöflin, en ekki ferðirnar þar sem er bara sól og blíða út í eitt.

Hvað er annars meira spennandi en að standa uppi á Dyrhólaey í hávaða roki, eða niður við suðurströndina þegar stórir brimskaflarnir skella á ströndinni?

Útlendingar sem koma hingað reikna EKKI með einhverju Majorka veðri með sól og bláum himni enda sér hið kuldalega nafn "Ísland" um að svo sé. Fólk vill upplifa eins konar "The Lord of the Rings" stemningu hér.

Ég fékk síðan send e-mail frá fólki úr ferðinni. En hópurinn dásamaði ferðina í bak og fyrir þrátt fyrir "... It was pouring rain that day...." :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 13.9.2007 kl. 17:42

3 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Kjartan, ég er sammála þessu að miklu leyti. Ég var í þeim hópi leiðsögumanna sem upplifði kollsteypur í veðri í Vík núna í byrjun maí (hvar varst þú, hmm?) og það verður minnisstætt. Þegar maður er hins vegar með rútufarþega til kannski eins dags getur verið mikil áreynsla að halda gangandi góðu skapi og stuði hjá farþegunum sem fara út að skoða vita og inn í rútu þar sem eru móðuþéttar rúður af blautum yfirhöfnum, út að skoða foss, inn í móðuna, horfa út um ... drulluga glugga, forðast funheita miðstöðina ... o.s.frv.

Og maður leggur sig fram um að segja skemmtilega frá, vera í jafnvægi og helst góðu skapi, missa ekki dampinn - þá reynir á mann og það er allt í lagi. Ég hef líka farið heilan hring í bongóblíðu og allir brostu hringinn. Ég hef einu sinni lent í því með hvatahóp að hópstjórinn bað okkur um að SLEPPA ÞINGVÖLLUM á leiðinni í bæinn vegna ofankomu.

En Kjartan, heilt yfir erum við sammála. Og guði sé lof og dýrð fyrir trjáleysið.

Berglind Steinsdóttir, 13.9.2007 kl. 19:20

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Geggjaðar myndir og rétt hjá þér. Leiðsögumaður sem talar út í eitt, skemmir nefnilega bara landslagið.;-)

Halldór Egill Guðnason, 13.9.2007 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband