Því miður er lítið hægt að gera þegar svona gerist langt frá mannabyggðum til að hjálpa viðkomandi!

Það er sárt til þess að vita að því miður er það oft svo að þegar fólk er langt frá mannabyggðum og eitthvað gerist eins og t.d. hjartaáfall að möguleikar á að bjarga viðkomandi eru nánast hverfandi.

Þetta er stórt vandamál sem gönguleiðsögufólk verður að horfast í augu við. Þrátt fyrir að hægt sé að gera lífgunartilraunir í einhvern tíma og upp að vissu marki, þá er sá tími sem þarf til að koma viðkomandi undir læknishendur og rétta meðhöndlun það sem mestu máli skiptir.

Hér má sjá myndir af kennslu í slysahjálp sem að ég tók þegar ég var í námi í gönguleiðsögn.

Kennsla í slysahjálp hjá Menntaskólanum í Kópavogi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Kjartan
WWW.PHOTO.IS


mbl.is Varð bráðkvaddur á göngu við Bása
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta viðeigandi frétt til að "plögga"?

Ljenzherrann (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 23:50

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Var svona á báðum áttum. En þar sem um erlendan aðila var að ræða þá taldi ég að forvarnargildið væri meira mikilvægt en hitt. Vona að ég hafi ekki komið illa við neinn með þessari athugasemd.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 11.8.2007 kl. 00:05

3 identicon

Þetta er allt í lagi pistill skrifaður á góðum nótum...það er hinsvegar ekki hægt að segja það sama með vísuna hjá Má Högnasyni í tengingu við þessa frétt.

Menn sem komnir eru um eða yfir miðjan aldur (t.d. smbr. þingmanninn um daginn) eiga auðvitað ekki að vera æða út um fjöll og firnindi..það býður hættunni heim. 

Kári Elíson (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 08:28

4 identicon

Það er staðreynd að ef fólk fær hjartastopp að þá eru lífslíkurnar meiri eftir því sem hjálp er hafin fyrr.  En þrátt fyrir að fyrsta hjálp hefjist innan við 4 mín og sérhæfð meðferð innan við 8 mínútna þá eru lífslíkurnar aðeins 43%.  Eftir 30 mín eru þær nánast engar nema í afar sérstökum tilfellum.  Þannig að þó að manneskja fái hjartastopp fyrir utan sjúkrahús þá eru frekar litlar líkur á að hún lifi af.

Algjörlega er ég ósammála því að menn komnir yfir miðjan aldur eigi ekki að æða um fjöll og firnindi.  Hvort vill maður kveðja þennan heim lokaður inni á skrifstofu eða í dásamlega fallegu fjalllendi.  Að vísu þarf að senda nokkra tugi björgunarfólks á staðinn.  En það eru líka þúsundir fólks sem stundar göngur, auka lífshamingju sína og framlengja góðri heilsu sem skilar sér margfalt tilbaka í samfélagið.   

Helena (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 11:01

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Hér má lesa blogg um ferð sem að ég fór með hóp af fullorðnu fólki yfir Fimmvörðuháls.



http://photo.blog.is/blog/photo/entry/257799/?preview=1



Þetta er meira spurning um í hvernig formi fólk er í þegar það leggur í svona erfiða göngu eins og umrædd ferð var.



Það sem að mér þótti mest magnað í þessari ferð, var að ein eldri konan í hópnum hafði gleymt rafhlöðu í myndavélina sína eftir að við vorum komin töluvert upp fyrir Skógarfoss. Hún lét sér lítið muna um að hlaupa til baka og svo upp stigann fræga sem er við Skógarfoss án þess að blása úr nös.



Svo kláraði hún 12 tíma göngu í framhaldinu með stæl.



Einnig var fólk í sama hóp sem fór á fjórum fótum í gegnum Surtshelli þrátt fyrir fullt af líkamlegum vandamálum. Einn besti hópur sem að ég hef verið með í langan tíma.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 11.8.2007 kl. 11:42

6 identicon

Það að sjá svona dellu svör að menn komnir yfir miðjan aldur eigi ekki að vera að æða útúr bænum  og upp um fjöll og firnindi vegna hættu á eigin dauðsfalli, er álíka gáfulegt og það að við hættum að hvílast í rúmum vegna þess eins að næstum 100% dauðsfalla verða þar.

Og það að óttast dauðann er ekki til neins og stressa sig á lífinu sem ekkert okkar kemst lifandi frá, það er ekkert eins eðlilegt en það einmitt að dæðasat og deyja.

 Kv Villi

Vilbogi M. Einarsson (IP-tala skráð) 12.8.2007 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband