Hringsdalur, myndir og kort

Á vef Fornleifaverndar ríkisins mátti finna eftirfarandi um Hringsdal og þar eru einnig fínar myndir af svæðinu.

http://www.fornleifavernd.is/index.php?pid=69

"Hilmar Einarsson forvörður og eigandi jarðarinnar Hringsdal í Arnarfirði hafði samband við Fornleifavernd ríkisins sumarið 2006 og tilkynnti að Eyjólfur bróðir hans hefði fundið mannabein í meintu kumli sem er að finna á landareign Hilmars og Kristínar konu hans. Í Hringsdal, er samkvæmt sögnum, haugur Hrings, norsks manns sem kom til Íslands með Erni landnámsmanni sem nam Arnarfjörð. Hringur var sagður veginn af Austmönnum sem höfðu elt hann til Íslands til að hefna fyrir víg. Hringur varðist vel og hryggbraut fjölda Austmanna á steini og eru þeir einnig heygðir í Hringsdal skv. sögnum. Fornleifavernd ríkisins fór vestur og kannaði aðstæður. Adolf Friðriksson, Fornleifastofnun Íslands ses tók að sér rannsókn á kumlateignum og minjunum í Hringsdal. Frumkönnun Adolfs leiddi í ljós kumlateig, mannabeinabrot, hluta kjálka með tönnum, kambbrot og leifar fleiri gripa. Verður spennandi að fylgjast með hvað rannsóknin leiðir í ljós."


Hótel Búðir eru með flottan vef og mátti þar lesa þennan texta:

http://www.budir.is/default2_is.asp?active_page_id=48

"Vestur í Arnarfjarðardölum er bær, sem nú á tímum jafnan er nefndur Hringsdalur, alkunnur bær, því að þar hefir löngum verið myndar- og rausnarheimili. Í Hringsdal hafa gengið munnmælasagnir um landnámsmanninn Hring, er bærinn sé við kenndur, og deilur hans við Austmann í Austmannsdal, er lyktuðu með því, að Hringur féll í bardaga í Hringsdal. Hringshaugur er sýndur enn í dag, og ýmis örnefni eru þar önnur, sem lúta að þessum sögnum, Víghella, Bardagagrund, efri og neðri, Ræningjalág eða Austmannalág. Er þetta í rauninni heil Íslendingasaga, sem þarna hefir gengið í munnmælum, og hafa þeir skráð inntak hennar hvor í sínu lagi, Sigurður Vigfússon 1) og Helgi Guðmundsson 2) en aldur sögu þessarar má ef til vill marka af því, að í eldri heimildum, allt niður á 18. öld, er bærinn jafnan nefndur Hrísdalur, og mun ekki vera að efa, að það sé hið upphaflega nafn hans."

Hringsdalur er um 10 km frá Bíldudal.

Á myndinni er horft til norðurs þar sem má sjá Arnarfjörð og þar sem glittir í gulan sandinn er Hvestudalur þar sem áin Vaðall rennur og næsti dalur til vinstri er Hringsdalur.

Hornið sem dökka skuggann ber á heitir Nónhorn og lengra til vinstri má sjá hvar Hringsdalur er (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Hér er svo kort af Hringsdalur, Hvestudal, Arnarfirði, Nónhorni, Bíldudal

Hringsdalur, Hvestudalur, Arnarfjörður, Nónhorn, Bíldudalur (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

mbl.is Kuml fannst í Arnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Garðarsson

Hvað eru menn að eltast við þetta gamla drasl sem engu máli skiptir?  Þarna vantar eitthvað nútímalegt og fallegt, t.d. olíuhreinsunarstöð.

Hjalti Garðarsson, 18.8.2007 kl. 10:35

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það er alltaf góð spurning hvað gera á við allt þetta gamla drasl :)

Ef heimssagan er skoðuð, þá fer ótrúlegur tími hjá fólki í að fara yfir þessa gömlu tíma.

Líklega væri hægt að spara mikið með því að eyða allri þeirri orku sem fer í að velta sér upp úr því sem er liðið og horfa meira fram á veginn.

Það er búið til fullt af stofnunum og ótaldir eru þeir fræðingar sem eru að kanna sögu, listaverk og halda skrá um nánast allt milli himins og jarðar. Til eru sérfræðingar í öllum helstu stórmennum fyrri tíma og þar er hægt að fara niður í fáránleg smáatriði!

En mannskepnan er undarleg og það verður að unna henni þessa sérvisku.

Snýst ekki málið um að gera það sem að maður hefur gaman að og ekki er verra ef hægt er að fá borgað fyrir það líka.

Ef þú getur fengið einhvern annan til að borga fyrir fáránleikan, nú þá er lítið við því að segja.

En ég vil taka það fram sérstaklega að ég er EKKI að setja út á fornleifarannsóknirnar sem verið er að fjalla um í þessari frétt og tel það í raun hið besta mál.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 18.8.2007 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband