Myndir - Ljótipollur

Ljótipollur er gígur rétt við Landmannalaugar og má sjá hann lengst til vinstri á eftirfarandi mynd

Til hægri má sjá Frostastaðarvatn (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Hér má svo sjá brúnina sem ekið var fram af

Ljótipollur (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Eins og sjá má, þá er mikið stoppað við Ljótapoll. Mikil umferð er oft á gígbarminum og hér má sjá "self-drive" hóp á ferð undir stjórn Inga. En þar fá ferðamenn að aka bílum um hálendið með leiðsögn.

Self-drive við Ljótapoll (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Ljótipollur er sprengigígur á Landmannaafrétti. Ljótipollur er syðsti gígurinn í Veiðivatna-goskerfinu. Ljótipollur er fagurrauður með háa gígbarma og vatni í botninum. Vatnið er 14m djúpt. Í vatninu er nokkur veiði þó svo það sé að- og frárennslislaust. Einungis veiðist urriði sem getur oft orðið nokkur pund.

Gígbarmurinn á Ljótapoll - Ef vel er skoðað, þá má sjá fólk á labbi á kantinum á móti (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Ekki annað að sjá en að Ljótipollur sé mjög vinsæll. Hér er amerískur hópur á ferð og ekkert til sparað :)

Ameríkanar á hringferð um landið með viðkomu við Ljótapoll (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Spurning um að setja upp skilti sem varar ökumenn við því að aka ekki ofan í gíga á Íslandi :)

Kjartan
WWW.PHOTO.IS


mbl.is Keyrði út í Ljótapoll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Loksins kemur blogg um frétt á mbl sem er ekki bara eitthvað misgáfulegt comment á fréttina heldur bætir fréttina margfalt...  frábært.

bling (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 08:51

2 identicon

Tek undir það, takk fyrir þetta Kjartan Pétur

Linda (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 09:04

3 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Takk fyrir góðan stuðning.

Kjartan

Kjartan Pétur Sigurðsson, 5.7.2007 kl. 09:07

4 identicon

Heyr, heyr!!!

Fyrir þá sem ekki ferðast mikið um landið er þetta mjög góður fróðleiksmoli, því nafnið Ljótipollur hljómar eins og lítill, ljótur pollur

RKS (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 09:11

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það má finna fleiri nöfn í svipuðum dúr. Vítin eru t.d. tvö fyrir norðan. Annað er gígurinn víti við Kröflu og svo er líka víti við Öskjuvatn. En "Hel"-vítin eru til að varast þau! Allt sprengigígar.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 5.7.2007 kl. 09:26

6 Smámynd: Hólmgeir Guðmundsson

Flestum sem þangað koma finnst nafnið hreint öfugmæli. Ég sá einhvers staðar eða heyrði þá skýringu að pollurinn hafi myndast í eldgosi á sögulegum tíma, einhver hafi komið þarna að eftir gos og saknað þess lands sem fyrir var. Og því gefið hinu nýja landslagi óvirðulegt heiti. Etv má flokka þeta sem umhverfismótmæli. Annars vil ég taka undir hrós um þetta innskot, það er nokkurs virði ólíkt flestum bloggum sem skrifuð eru við fréttir í mbl.

Hólmgeir Guðmundsson, 5.7.2007 kl. 09:54

7 Smámynd: Guðni Þór Björgvinsson

Sæll Kjartan, ég ætla að taka undir "Bling" og "Lindu" hér að ofan. Það er alltof mikið af einhverju liði að blogga við fréttir hérna á mbl og hafa nákvæmlega ekkert frá að segja. Maður er orðinn hundþreyttur á því. Menn einsog þú eru akkúrat andstæðan.

Ég sá þessa frétt detta inn í morgun og ég hugsaði einmitt strax hvort að Kjartan myndi ekki setja inn myndir af Ljótapolli. Sú var raunin og þakka þér kærlega fyrir.

Keep up the good work! 

Guðni Þór Björgvinsson, 5.7.2007 kl. 10:26

8 Smámynd: Bryndís Helgadóttir

Frábærar myndir hjá þér.   Takk fyrir þetta!

Bryndís Helgadóttir, 5.7.2007 kl. 11:01

9 identicon

Fínt einmitt að fá myndir með þessar frétt. Heppni að allir sluppu vel úr þessu því þetta er snarbratt þarna niður. Menn verða að passa sig á því að vera með fulla athygli við aksturinn þarna þegar komið er upp á gígbarminn.

Davíð (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 11:07

10 Smámynd: B Ewing

Flottar myndir af Ljótapolli.  Ömurlegt atvik á ferð engu að síður eda hrikalegt um að lítast við Ljótapoll, hvað þá að keyra niður...

B Ewing, 5.7.2007 kl. 11:42

11 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Og við Georg bílstjóri vorum þarna í síðustu viku, stoppuðum að vísu bara við Hnausapoll, að hrella saklausa Svisslendinga ... En við fórum heldur ekkert mjöööög nálægt brúninni, bara nóg til að fá viðbrögð. En það er aldrei of varlega farið.

Berglind Steinsdóttir, 5.7.2007 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband