ÞINGMENN ÞURFA MEIRA KYNLÍF TIL AÐ ÖRVA ÞINGSKÖP!

ÞINGMENN ÞURFA MEIRA KYNLÍF TIL AÐ ÖRVA ÞINGSKÖP!

Ef Þingheimur Alþingis Íslendinga hefði verið svona sprækur eins og þessi gamli maður hér, að þá væri þjóðin örugglega í betri málum í dag. Þess í stað er verið að rífast og karpa um hvort að það eigi að banna súludans hjá Geira i Goldfinger eða hvort einhver bóndi austur á fjörðum megi hafa hreindýrakálf í garðinum hjá sér.

http://uk.reuters.com/news/video?videoId=102037

 

En núna eru að koma kosningar og það grátlega við þær er að í raun er verið að kjósa 63 þingmenn ásamt fullt af aðstoðarmönnum í 109 daga sumarfrí!

Ég bara spyr, því þarf allan þennan fjölda af ráðherrum, þingmönnum, aðstoðarmönnum, ráðuneytum, sendiráðum og ríkisstofnunnum ... og síðast þegar ég vissi hátt í 800 nefndir til að stjórna 320 þúsund manna þjóðfélag?

Á eyjunni Fjóni (Fyn) í Danmörku býr svipaður fjöldi af fólki. Ég er ansi hræddur um að margir myndu reka upp stór augu ef þeir sæju annað eins bruðl og vitleysu þar eins og er látið viðgangast á Íslandi.

Ég er á því að þetta sé aðeins of mikill lúxus. Er ekki bara allt þetta lið á fullu í því að hossa hvert öðru.

Annars var ég á skemmtilegum kosningafundi í Jónshúsi í gær og voru þingmenn flestra flokka mættir á staðin. Þetta er í fyrsta skiptið sem að ég fer á svona fund og verð ég að segja að þetta hafi bara verið hin ágætasta skemmtun þegar upp var staðið. Fróðlegt væri að vita til hvers þarf svo að senda fullt af liði á Norðurlandaráð með tilheyrandi dagpeningum og hóteluppihaldi og að sjálfsögðu allur kostnaður greiddur að auki þó svo að lögin kveði á um annað! En fundur Norðurlandaráðs var víst í gangi sömu dagana í Köben.

Kjartan WWW.PHOTO.IS
mbl.is Ofbeldi og skemmdarverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Jónsson

Leist þér ekki vel á okkur í Borgarahreyfingunni Kjartan?

Fulltrúi okkar var reyndar ekki á þingi í Köben og greiddi bara farið út sjálfur, en hann, Jóhann, var hæstánægður með fundinn bara.

Baldvin Jónsson, 20.4.2009 kl. 15:38

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Sæll Baldvin þó seint sé,

Ég sé að þú hefur komið með athugasemd hjá mér sem hefur farið alveg fram hjá mér. Jóhann stóð sig mjög vel á þessum fundi, var mjög skýr og kom málinu vel frá sér. Þið eruð greinilega með góðan mann í áhöfninni hjá ykkur og til hamingju með þennan góða árangur í kosningunum. Þetta er ótrúlegur árangur á svona stuttum tíma og það án alls styrkjakerfisins sem gömlu flokkarnir búa við.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 7.5.2009 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband