Bolungarvík - Myndir

Rétt eftir að búið er að aka fyrir Óshlíðina á leið til Bolungarvíkur, þá blasir Bolafjall við hinu megin við lítinn fjörð. Þá er stutt í Minjasafnið Ósvör sem er uppgerð verbúð frá árabátatímanum. Verbúðin er ein elsta sinnar tegundar á landinu.

Minjasafnið Ósvör (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Var á flugi um Vestfirðina fyrir nokkrum dögum og tók þá myndir af svæðinu í kringum Bolungarvík.

Hér má sjá yfir bæinn Bolungarvík og höfnina

Vestfirðir, Bolungarvík (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Hér má sjá kort af flugleiðinni yfir Bolungarvík sem farin var á mótordrekanum.

kort af flugleiðinni yfir Bolungarvík og nágreni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Hér er horft yfir Bolungarvík til norðausturs og má sjá inn í Jökulfirðina, Snæfjallaströnd og Ísafjarðardjúpið í baksýn.

Bolungarvík og nágreni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Hér er horft niður í Skálavík til vesturs og er hægt að aka þangað frá Bolungarvík.

Skálavík og nágreni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Á Bolafjalli fyrir ofan Bolungarvík er nýleg radarstöð sem búið er að yfirgefa.

Skálavík og nágreni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Vegurinn á myndinni var lagður 1986 frá Bolungarvík upp Stigahlíð að radarstöðinni sem sjá má á myndinni hér fyrir ofan.

Einnig má finna leifar af radarstöð setuliðsins á Straumnesfjalli. Sú stöð var reist á árunum 1950-55 og starfrækt fram undir 1960. En þá tekin niður allur búnaður að undanskildum steinhúsum

Óshlíðina þekkja margir úr fréttum í gegnum árin. En hún hefur löngum verið erfiður farartálmi fyrir Bolvíkinga. Mikið grjóthrun hefur verið úr hlíðum fjallana yfir veginn á milli Bolungarvíkur og Hnífsdals.

fjöllin Óshyrna, Arafjall, Búðarhyrna ásamt Ófæru (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Í gegnum þessi fjöll er búið að skipuleggja jarðgöng. En á myndunum má sjá að vegurinn meðfram ströndinni hefur víða verið settur í stokka til að varna umferð um veginn grjóthruni.

Kjartan
WWW.PHOTO.IS


mbl.is Bakkavík hættir vinnslu tímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Flottar myndir og fróðleg lesning. Takk fyrir

kveðja.

??? (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 19:52

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Snilldar fjallamyndir. Þú ert frábær ljósmyndari.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.7.2007 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband