Brýnt er að koma sem flestum lögnum í jörðu á viðkvæmum stöðum

Hvað er eiginlega að gerast hjá þingheimi þessa daganna. Nú kemur hver þingsályktunartillagan á fætur annarri þar sem annars þessi ósamstíga hópur virðist geta komið sér saman um fullt af flottum málum.

Það er víða sem að maður er á ferð um ósnortna náttúru landsins að maður lendir í því að háspennulínur blasa fyrir augum þar sem síst skyldi.

Spurning um að bæta inn í svona hugmyndavinnu að reyna að samræma lagnir á vegum, vatnslögnum, raf- og háspennulögnum.

Það verður þó að viðurkennast að framkvæmdir við virkjanir og fleira á hálendi landsins hefur kallað á vegakerfi sem ísendingar og ferðamenn hafa fengið að njóta.

Hér má sjá sjá 2 háspennulínur sem liggja rétt við Háafoss sem er efst í Þjórsárdal.

Háspennulínur við Háafoss fyrir ofan Þjórsárdal (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Línan vinstra megin er ný og var lögð á mettíma vegna stækkunar á Norðurál.

Nú hefur kostnaður við að leggja jarðstrengi lækkað mikið. Verð á lagningu á jarðstreng samanborið við loftlínur er frá því að vera lítið hærri upp í tífallt verð sem hlýtur þá að ráðast af því hvað háa spennu er verið að flytja og svo hvernig jarðvegurinn er.

Háafoss sem er efst í Þjórsárdal.

Háiafoss fyrir ofan Þjórsárdal (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)




Kjartan
WWW.PHOTO.IS


mbl.is Vilja móta stefnu um raflínur í jörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þetta á ekki að sjást á stöðum eins og við Háafoss. Þar er mikil náttúrufegurð og möstur skelfileg sjónmengun.

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.12.2007 kl. 20:25

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Ég gæti tínt til margar myndir í svipuðum stíl. En ef hægt er að leggja strengi í jörðu, þá er kjörið að leggja þá meðfram vegakerfi landsins.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 11.12.2007 kl. 20:36

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð tillaga hjá þér eins og oft áður.  Leggja með þjóðvegum, auðveldar aðgang að viðgerðum. 

Ásdís Sigurðardóttir, 11.12.2007 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband