Einföld leið til að gera verðkannanir - Nota tæknina :)

Skil ekki hvers vegna það þarf að vera svona mikið mál að gera verðkannanir. Hér eru nokkrar einfaldar leiðir.

1) Hægt er að biðja fólk um að senda inn afrit af verðstrimlinum þar sem koma fram upplýsingar um vöru, verð ásamt dagsetningu.
2) Valin hópur neytenda getur skráð sig inn á sérstakan vef þar sem hægt er að skrá inn upplýsingar um síðustu innkaup og svo myndi tölvukerfi sýna í rauntíma meðalverð á völdum vöruflokkum milli verslana. Er þá nóg að fara á netið rétt áður en hlaupi er út í búð. Þannig væri hægt að sýna á grafískan máta hækkanir/lækkanir á vörum.
3) Verðlagseftirlit fær útskrift fyrir ákveði tímabil beint úr kassakerfinu frá verslunum


mbl.is Bónus gerir athugasemd við frétt Sjónvarpsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fransman (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 11:41

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Frábær hugmynd !

Nú þarf einhver að leggja fram vefsíðu til að koma þessu í gang þegar í stað !

 AUGLÝST EFTIR EINHVERJUM GÓÐUM SEM KANN ÞAÐ !

Á svona síðu þyrftu menn að skrá sig undir dulnefni, eins og hægt er á Moggablogginu þannig að menn skrái nafn og kennitölu í gagnagrunn á bak við dulnefnið þannig að hægt sé að rekja ef einhver fer að misnota svona síðu. Hver og einn verður síðan að geyma verslunarkvittunina eða geta skannað hana inn á grunninn svo aðrir geti séð hana.

Best væri að menn geti stofnað grunn fyrir hverja vöru þannig að menn þurfi bara eftir það að fylla inn í auða reiti dagsetningu og kl. hvað og hvar er keypt og verð vörunnar.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.11.2007 kl. 12:00

3 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Ég þekki 2-3 sem eru góðir að forrita svona dæmi. Spurning um að kanna málið betur. Núna vantar gott nafn á heimasíðuna eins og www.verd.is sem er laust :)

Einnig væri hægt að virkja Moggamennina til að koma upp svona síðu. Þeir eru með gríðarlega þekkingu og ættu ekki að vera í vandræðum með að útbúa svona síðu - væri afnvel hægt að tengja hana blogginu. Svo er alltaf gott fyrir .... að geta haft hönd í bakka við útfærslu á svona hugmyndum :)

Það er ekki spurning að svona síða myndi vekja upp verðskyn neytanda og að endanum öllum til góða. Þetta gæti gilt á allar vörur eins og bensín m.m.

Í raun ættu Neytendasamtökin að reka svona síðu.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 2.11.2007 kl. 12:10

4 identicon

Þetta er góð hugmynd. Verðkönnunarkerfið eins og það er í dag er út í hött og sýnir engan veginn raunveruleikann.

Glanni (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 12:14

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Svo má líka nota kerfið á þingmenn :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 2.11.2007 kl. 12:16

6 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það er oft sem sama hugmyndin kemur upp á mörgum stöðum í einu. Ástæðan er einfaldlega sú að þá er búið að skapa grundvöll eða jarðveg sem viðkomandi hugmynd getur sprottið upp úr.

Til að drepa góða hugmynd, þá er til fullt af fólki eins og sá sem gaf fyrsta kommentið á þessa hugmynd :)

Neikvæðni er það sem allir með nýjar hugmyndir mæta og það er NÓG til af NEIKVÆÐU fólki sem sér mörgum góðum hugmyndum ALLT til foráttu.

Með rannsóknum hefur verið sýnt fram á að þeir sem ná hvað lengst hafa óbilandi trú á því sem að þeir eru að gera, stefna markvist að settu marki og kunna að leiða þetta neikvæða fólk hjá sér :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 2.11.2007 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband