Hér sannast hið fornkveðna að karlmenn eiga ekki að koma nálægt heimilisstörfum :)

Er þetta enn ein sönnun þess að konur eigi að sjá um eldhússtörfin?

Hér gefur að líta ýmsar útgáfur af ostaskerum og með því að velja réttan skera fyrir réttar aðstæður, þá ætti að vera hægt að koma í veg fyrir svona slys!

Ýmsar útgáfur af ostaskerum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


En rétt er að benda á það fyrir karlmenn sem eiga í erfiðleikum með að skera ostinn sinn, að lausnin er að kaupa ostinn í sneiðum eða þá sem smurost!

Kjartan
WWW.PHOTO.IS

p.s. Ef mig minnir rétt, þá hefur ostaskerinn sem er neðst lengst til vinstri leikið stórt hlutverk í stríðs- og hryllingsmyndum :|


mbl.is Ostaskeri eyðilagði Íslandsför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hér upp úr 1970 var ég að vinna í Noregi og þar vann hópur ungs fólks frá Sviss, þýskalandi ofl. þeir kölluðu ostaskerarana norsku, nískuskerara, fannst þetta bara skömmtunartæki sem enginn ætti að nota.  Takk fyrir myndirnar.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.8.2007 kl. 12:08

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Takk fyrir innlitið og ekkert að þakka. Þessar myndir eru að vísu ekki mínar í þessu tilfelli.

En annars veit ég ekki alveg hvernig þessi norski ostaskeri lítur út, þú ert þá líklega að meina þennan sem gerir þunnu sneiðarnar.

Oft er sagt um Skotana að þeir séu manna sparsamastir. En ég veit ekki alveg hvað skal segja um frændur vora Dani og Norðmenn.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 17.8.2007 kl. 12:37

3 identicon

Já þeir eru til í ýmsum gerðum og stærðum en þarna vantar samt mitt uppáhald. Gastromax heita þeir blessaðir og eru til í ýmsum litum. Eru úr plasti og verða ekki bitlausir. Sænsk gæðavara sem fæst í helstu stórmörkuðum landsins. Algjör snilld eins og maður segir.

Rakst líka á þessa heimasíðu ef einhver hefur áhuga og nei ég tengist þessu fyrirtæki ekkert.
http://www.daggir.is/?val=vara&numer=88&undir=13

Njótið vel þið sem hafið brennandi áhuga á góðum ostaskerum.

Þórhildur (IP-tala skráð) 17.8.2007 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband