SNJÓKARLAR Í EGYPTALANDI! - MYNDIR

HÉR ERU ANNARSKONAR SNJÓKARLAR Í EGYPTALANDI - MYNDIR

Arab Republic of Egypt جمهورية مصر العربية Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah

The White Desert National Park, Sunset, Bahariya Oasis, Egypt

Ég varð þeirra ánægju aðnjótandi að fá að upplifa sólsetur, sólarupprás, fullt tungl og stjörnubjartan himin í Egyptalandi fyrir stuttu. Fyrst varð ég vitni að því þegar sólin settist á alveg á hreint ótrúlegum stað og síðan náði ég að vakna snemma næsta morgun og verða vitni að sólarupprás. Staðurinn var hreint ævintýri líkastur og draumastaður fyrir þá sem hafa áhuga á að taka myndir.

Ég varð þeirra einstöku upplifunar aðnjótandi að fá að sofa eða vaka úti undir berum himni, skjálfandi úr kulda, lengst úti í Sahara eyðimörkinni, með alla þá guðs dýrð sem núna ber fyrir augunum og eftirfarandi myndir sýna. Það er greinilega víða til falleg náttúra en bara á Íslandi!

Það er alveg með ólíkindum að þessi klettur skuli geta staðið einn og óstuddur. Vindur og sandur hafa líklega í sameiningu mótað og formað þennan klett. Eins og Sjá má, þá er ekki mikið eftir. Staðurinn er á stað sem kallast The White Desert. En þar má finna ótrúlegar kalkmyndannir sem hafa myndast á löngum tíma. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A 4x4 desert Safaris in Egypt and Evening walk in Sunset in The White Desert or Mushroom Desert in National Park, Bahariya Oasis, Egypt. A Big, Giant Mushrooms made of agabat rocks. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson




Spurning hvort að það þurfi að styðja við þennan hnullung. En líklega hefur hann staðið óstuddur í nokkuð marga mannsaldra. Skuggamynd með sólsetur í baksýn. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A shadow picture. A 4x4 desert Safaris in Egypt and Evening walk in Sunset in The White Desert or Mushroom Desert in National Park, Bahariya Oasis, Egypt. A Big, Giant Mushrooms made of agabat rocks. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson




Hér er hver kletturinn öðrum fegurri. Það er nánast sama hvert litið er (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A shadow picture. A 4x4 desert Safaris in Egypt and Evening walk in Sunset in The White Desert or Mushroom Desert in National Park, Bahariya Oasis, Egypt. A Big, Giant Mushrooms made of agabat rocks. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson




Náttúran getur stundum verið mögnuð. Líklega er þessi sveppur búinn að standa lengi. Hvítur kalksteinn. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A main geographic attraction of Farafra is its White Desert (known as Sahara el Beyda, with the word sahara meaning a desert). The White Desert of Egypt is located 45 km (30 miles) north of Farafra. The desert has a white, cream color and has massive chalk rock formations that have been created as a result of occasional sandstorms in the area. The Farafra desert is a typical place visited by some schools in Egypt, as a location for camping trips. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson




Á wikipedia má lesa nánar eftirfarandi þaðan sem fyrrgreindar upplýsingar eru fengnar (enska).

Gæti hugsast að þessi unga kona ætti eitthvað vandtalað við þennan stóra haus. Það fer allt eftir ímyndun hvers og eins hvaða form og myndanir er hægt að sjá út úr þeim náttúruvættum sem þarna eru. Ég er ekki frá því að þetta sé mynd af Steingrími Hermanssyni fyrrum forsætisráðherra. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Calcium rich White Desert was once a sea bed and the fantastic shapes are created by sand, wind and water erosion. white desert I giant rock formation talking to a young women. The White Desert National Park, Sunset, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson




Hér eru 3 vinkonur að mynda hvor aðra (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The White Desert covers an area of about 6,000 square kilometers and lies 500 km southwest of Cairo. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson




Hér horfir ung dama á sólina setjast niður út við sjóndeildarhringinn. Við hlið hennar er tröllaukin haus (Steingrímur Hermannsson). (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The White Desert National Park, Sunset, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson




Ég lofa að gera betur grein fyrir þessu svæði í 2-3 bloggum til viðbótar.

Kjartan WWW.PHOTO.IS

Hér má svo sjá önnur blogg úr sömu ferð:

Blogg um flug með loftbelg sem Hassan útvegaði má svo sjá hér ásamt meiru:

Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/

Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/

Hluti-III http://photo.blog.is/blog/photo/entry/818496/

Hluti-4 http://photo.blog.is/blog/photo/entry/819322/

Skólahald í Egyptalandi http://photo.blog.is/blog/photo/entry/847341/

NEFERTITI DROTTNING http://photo.blog.is/blog/photo/entry/843600/


mbl.is Snjókarlinn ekki látinn í friði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrirgefðu Kjartan, en veistu hvað snjókarl er ??

Sía (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 15:36

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Sæl Sía.

Þetta með snjókarlinn átti nú að vera smá öfugmæli, en eins og margir vita, að þá kemur ekki dropi úr lofti á þessu svæði og svo er hitastigið víst líka í hærri kantinum. En þessar kalkmyndanir sem myndirnar sýna, eru í raun eins hvítar og þær geta mögulega verið. Guli liturinn stafar af því að sólin er að setjast og breytist því liturinn aðeins yfir í rauðgulan lit. Þessi mynd sýnir betur hversu hvítur liturinn er í raun, en þessir hleðslusteinar eru unnir úr sama efni:

Þegar ég leit yfir eyðimörkina rétt áður en myrkur skall á, þá minntu hvítu þúfurnar óneytalega mikið á snjó ...

Svo er bara að vona að þessi skýring hjálpi eitthvað.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 9.4.2009 kl. 18:01

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þetta er ansi magnað, flott birtan líka. En hann er örugglega orðin ansi tæpur þessi á fyrstu myndunum.

Emil Hannes Valgeirsson, 9.4.2009 kl. 20:40

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hugsaði það sama og þú Kjartan,það er víða náttúrufegurð en á Íslandi.Man eftir einum steini sem kallaður er staupasteinn í Hvalfirði,sem líkist einhverjum þessara,þótt myndast hafi við ólíkar aðstæður. Mikið hljóta jarðvísindamenn að njóta þess að greina það.    Á meðan njóta listamenn sýn við að framkalla samspil ljóss og skugga í þessu sérstaka og fallega umhverfi. Kveðja til Heng.

Helga Kristjánsdóttir, 9.4.2009 kl. 21:37

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Birtan var ein sú magnaðasta sem ég hef upplifað. Fyrst var sólsetur, síðan fullt tungl um nóttina og svo mögnuð sólarupprás. Ég náði að upplifa allan pakkan á nokkrum klukkutímum. Þeir voru margir skúlptúrarnir sem að ég gekk fram á í þessari ferð sem voru orðnir tæpir og var mér hugsað til steinbrúnna yfir ánna við Ófærufoss inn í Eldgjá þegar hún hrundi og hvað það hefði verið mikil synd á sínum tíma. Ég fór jafnvel að spá í að til að vernda þessa skúlptúra betur, að þá gæti verið nauðsynlegt að bora niður í þá miðja og setja styrkingu til að þeir fengju að standa lengur!

En það er víst svo að ágangur mannfólksins inn á svona svæði skemmir ótrúlega mikið eins og sjá má t.d. á þessari mynd hér:

Ég heyrði að egypsk stjórnvöld ætluðu að reyna að vernda þetta svæði betur og fara að rukka sérstaklega og takmarka meira aðgang inn á svæðið. En heimamenn brugðust illa við og var því hætt við þau áform.

Sæl Helga, ég skila kveðju. Þú getur reynt að finna Staupastein á þessum myndum hér, en ég flaug skemmtilega ferð með þýskan lækni sem var komin á eftirlaun og sýndi henni m.a. Langjökul :)

http://www.photo.is/08/06/6/index.html

Sagt er að hinn frægi listamaður Salvador Dalí hafi fengið eitthvað af sinni "inspiration" frá þessu svæði!

Kjartan Pétur Sigurðsson, 10.4.2009 kl. 06:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband