TVÆR HRIKALEGA ERFIÐAR MYNDAGETRAUNIR FYRIR LESENDUR BLOGGSINS

Spurningarnar eru tvær og eru báðar myndaspurningar.

Veit einhver hver þessi Jón er. Ef vel er skoðað, þá má lesa nafnið hans fyrir ofan bústaðinn.

Spurning hvort einhver veit hvar þessi mynd er tekin, hver á bæinn og hversvegna er búið að skrifa JÓN í hlíðina fyrir ofan? (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Seinni myndin er tekin á allt öðrum stað á landinu. Hér má sjá hlut sem liggur hálf grafin í sand. 1) Hvað er þetta? 2) Hvar á landinu er þetta? 3) Því liggur þetta þarna?

(smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)




Þeir sem geta svarað þessu munu að sjálfsögðu vinna vegleg verðlaun .... :)

Gangi ykkur vel.

Kjartan
WWW.PHOTO.IS


mbl.is Keppa í svitabaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Ekki er þetta flugvallaspíra :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 12.8.2008 kl. 06:31

2 identicon

Það var einhver sem skrifaði þetta Jón fyrir ofan bæinn til minningar um afa eða langaafa...  Þetta var gert í tilefni myndlistasýningar í Dölum og í Reykholtssveit, og "JÓN" er skrifað við bæin Nýp á Skarðsströnd.  Ég veit ekki hver á bæinn... heitir hún nokkuð Þóra? 

Ég veit ekki hvað þetta seinna er, minnir mig á gamlan gám sem hefur e.t.v. verið á skipi sem hefur sokkið nálægt þessari fjöru - þessi risa sandbreiða gæti kannski verið í Skagafirði.

Sandra (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 08:49

3 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það er rétt að fyrri myndin er tekin við bæinn Nýp (Nipur samkvæmt korti, spurning hvort að orðið sé dregið af Nöp og þá hvort að það er svona napurt þarna?) á Skarðsströnd og líklega er það Þóra sem hefur með staðinn að gera.

Hægt er að lesa nánar um staðinn á heimasíðunni hér:

http://www.nyp.is/

En svo er ég með kort af svæðinu og svo virðist vera að bæjarnafnið sé ekki rétt ritað í GPS kortinu mínu.

Kort af bænum Nýp á Skarðsströnd

Kort af bænum Nýp á Skarðsströnd (smellið á kort til að sjá fleiri myndir)

En sandbreiðan er EKKI í Skagafirði þó svo að það sé hægt að finna margt í þeim firði sem svipar til þessa fyrirbæris :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 12.8.2008 kl. 10:45

4 identicon

Já, fyrri myndin er af bænum Nýp á skarðströnd, og allt sem var búið að svara við því.

En seinni myndin er af (1) Upprunalega kirkjuturninum í Þykkvabæ, (2) Tekið á Þykkvabæjarfjörum og (3) Þessu var bara hent þangað því búið var að gera nýjan

Reynir Eyjólfsson (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 18:15

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það er greinilega búið að svara öllu rétt. Ég sé að ég þarf að hafa spurningarnar erfiðari næst :)

Báðar þessar myndir vöktu mig sjálfan til umhugsunar og þá sérstaklega fannst mér spaugilegt hvernig komið var fyrir "blessuðum" kirkjuturninum niður í Þykkvabæ :)

En að vísu er ekki alveg komið á hreint hver þessi JÓN er?

Kjartan Pétur Sigurðsson, 12.8.2008 kl. 23:07

6 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Flottur og skemmtilegur pistill, endilega haltu áfram með getraunirnar.

Hin voru bara aðeins á undan mér

S. Lúther Gestsson, 13.8.2008 kl. 00:51

7 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Takk

Ég skal reyna að standa mig í þessum myndagetraunum, enda nóg til af myndum :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 13.8.2008 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband