FOSSINN FAXI Í TUNGUFLJÓTI - MYNDIR

Hér má sjá fossinn Faxa sem er skammt frá Biskupstungnabraut.

Fossinn Faxi er í Tungufljóti í Biskupstungum eða Bláskógabyggð á milli Reykholts og Geysis í Haukadal. Fremst á myndinni má sjá Tungnaréttir. Waterfall Faxi in Iceland in river Tunguflot. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Á myndinni má sjá laxastigann í Faxa. Veiðin hefur verið um 400 laxar á ári í ánni.

Fish-ladder or fish step in waterfall Faxi in Tungufljot (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)




Kjartan
WWW.PHOTO.IS

mbl.is Árekstur við fossinn Faxa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég stoppa nær undantekningalaust með farþega þarna þegar ég fer gullhringinn.. Faxi er flottur.

Hvaðan kemur nafnið Faxi ? 

Faxaflói ? 

Óskar Þorkelsson, 21.6.2008 kl. 12:26

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Sæll Óskar,

Rakst á þessa lýsingu hér á vef Örnefnastofnunar um orðið fax:

==================

15. 6, 2004

Ásgeir Eiriksson

Hver er uppruni orðsins Faxaflói og eru einhver tengsl við Faksebugt á Sjálandi?

Sæll Ásgeir.

Óvíst er hve gamalt nafnið Faxaflói er. Eldra nafn var Faxaós, sem fyrir kemur í Fjarðatali, e.t.v. frá því um 1200 og í Landnámu. Nafnið Faxaflói er a.m.k. í Ölfusvatnsannál Sæmundar Gissurarsonar (um 1698-1762) í eftirriti frá um 1790 (Annálar 1400-1800 IV:357). Í Lýsingu Útskálaprestakalls 1839 er nafnið Faxabugt (Landnám Ingólfs III, bls.157). Á kortum frá 18. öld er Faxafjörður og enn á korti Björns Gunnlaugssonar frá 1844 en Faxaflói kemst varla á kort fyrr en eftir 1900. Hugsanlegt er að Faxa-nafnið sé dregið af örnefninu Fax (Eyjarfax sem er nyrsti hluti Stafholtseyjar í Borg. og Nesfax norðan ár), í Andakíl í Borg. (Sbr. Kristian Kålund, Íslenzkir sögustaðir I (1984), bls. 225). Þar eru stórir móar og grasgefnir en mjög grasgefið svæði getur heitið Föxur (‘litlar tjarnir vaxnar stör’). Orðið fax getur líka merkt ‘straumröst í miðri á’ eða ‘óslegin grasmön’ (Ásgeir Blöndal Magnússon, Íslensk orðsifjabók, 167; Íslensk orðabók Eddu). Í Stafholtsey var til forna þingstaður Þverárþings og er hugsanlegt að ósinn þar hafi verið kenndur við áðurnefnd Föx en síðan farið að ná til alls fjarðarins eða flóans vegna þess hve þekktur staðurinn var.

Í Danmörku eru Fakse-örnefni talin dregin af orðinu fax í eldri dönsku í merkingunni ‘manke, mankehår’ (Bent Jörgensen, Dansk stednavneleksikon [I] (1981), bls. 35, þ.e. fax á íslensku.

Með bestu kveðju. Svavar Sigmundsson

==================

Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.6.2008 kl. 08:03

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Takk fyrir þetta Kjartan mjög svo fræðandi.  Ég hef heyrt nokkrar ástæður fyrir þessu nafni en engin sem mér fannst vera passleg..

ein sem mér datt í hug um orðið Faxi , faxaflói sé komið af foss.. því ef horft er út faxaflóa þá er hann meira og minna hvítfyssandi,  fossinn Faxi lítur út séð neðan frá ánni eins og hvítfyssandi alda..

Fax á hesti steypist niður líkt og foss..

Kannski maður sé á villigötum með þetta enda ekki linguistik á mínu þekkingasviði.

Óskar Þorkelsson, 22.6.2008 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband