Úbs! Eru Íslensk stjórnvöld enn að gera í buxurnar!

Það er ekki ósjaldan sem Íslensk stjórnvöld þurfa að láta rassskella sig opinberlega af Mannréttindadómstólnum í Strassborg. Því miður er það oft vegna brota á einföldum lýðræðislegum reglum sem eru fótum troðin hér á landi.

Það mætti halda að allur sá skari af hálærðum lögfræðispekingum sem ráfa um í villu á hinu háa Alþingi Íslendinga hafi ekki lært sína heimavinnu sem skildi!

Það er að sjálfsögðu slæmt til afspurnar þegar Íslensk stjórnvöld eru tekin í bólinu hvað eftir annað með allt niður á hæla. Á sama tíma ropa pólitískir fjölmiðlarnir út úr sér reglulega hvað allt sé mest og best á Íslandi og lýðurinn sýpur hveljur af hrifningu.

En það er skömm og hneisa fyrir Íslensk stjórnvöld að þurfa að láta hlutina ganga svona langt og glopra hverju málinu á fætur öðru í hendurnar á Mannréttindadómstólnum.


mbl.is Mannréttindadómstóll dæmir Íslendingi í vil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eru ekki fleiri mál á töfinni hjá þeim í EU? Þetta er ekki það síðasta. Er það alþjóðin sem borgar þessu fólki að sinna ekki starfi sínu? Ef svo er þá á að reka þá.

emelia (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 22:41

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Íslensk stjórnvöld hafa að vísu bjargað nokkrum málum fyrir horn á síðustu stundu með því að semja rétt áður en þau fóru alla leið fyrir Mannréttindadómstólinn. Þau vita sem víst að það er ekki gaman að fá svona stimpil á sig þegar þau eru að reyna með veikum mætti að komast á skör meðal siðaðra þjóða.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 19.12.2007 kl. 22:50

3 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Við skulum vona að við eigum ekki heimsmet í þessu miða við höfðatölu eins og í mörgu öðru :)

Það er nú óþarfi að vera sár - staðreyndirnar tala nú bara sínu máli.

Því miður ...

Kjartan Pétur Sigurðsson, 19.12.2007 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband