Hvar kemur þessi olíuhreinsistöð til með að rísa? Mynd + kort

Ég vona að ég sé að fara með rétt mál hér. En nafnið Hvesta hljómar nú ekki beint kunnuglega. Staðurinn er um 6 km frá Bíldudal.

Fínar myndir ásamt loftmynd af svæðinu með örnefnum má einnig sjá hér (ef klikkað er á gulu punktana á sumum myndanna, þá koma upp örnöfnin sem er undir viðkomandi punkt):

http://www.mr.is/~gk/hvesta/hvesta.htm

En myndirnar sem linkurinn vísar á eru unnar af Guðbjarti Kristóferssyni

Á myndinni er horft til norðurs þar sem má sjá Arnarfjörð og þar sem glittir í gulan sandinn er Hvestudalur þar sem áin Vaðall rennur.

Hornið sem dökka skuggann ber á heitir Nónhorn (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Hér er svo kort af má Hvestudalur, Arnarfjörður, Nónhorn

Hvestudalur, Arnarfjörður, Nónhorn (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

mbl.is Skýrslur um hugsanlega olíuhreinsistöð kynntar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þeim hefur áræðinlega fundist þetta vera nógu fallegur staður fyrir olíuhreinstöð. Þarna er hvítur fjörusandur, tignarleg fjöllin allt í kring og allt það sem náttúra Vestfjarða getur best boðið uppá. Þarna um Ketildali liggur leiðin út í Selárdal þar sem bjuggu Gísli á Uppsölum og Samúel Jónsson "listamaðurinn með barnshjartað". Ég var þarna í sumarleyfisferð með fjölskyldunni fyrir tveimur árum í brakandi blíðu og ég man vel eftir hvað gott var koma í Hvestudal og prófa sjóinn og hvíta skeljasandinn. Allt tal um olíuhreinsistöð þarna finnst mér vera lélegur brandari.

Emil Hannes Valgeirsson, 13.12.2007 kl. 22:29

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það eru víst margir á sama máli hvað þetta varðar. Þetta er einn afskekktasti staður landsins og því ekki að prófa að sjá hvað hægt er að komast langt þar eins og annars staðar.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 13.12.2007 kl. 22:53

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ætli það verði ekki niðurstaðan að reistar verði olíuhreinsistöðvar á báðum stöðum. Búið er að leggja niður fjölda slíkra stöðva austan hafs og vestan og þeir sem það gerðu verða fegnir að Vestfirðingar vilji taka að sér að reisa nýjar í staðinn.

Ómar Ragnarsson, 13.12.2007 kl. 22:53

4 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Sjálfsagt er auðvelt að semja við heimamenn á Bíldudal þessa dagana. Þarna horfir fólk upp á fólksfækkun, minnkandi atvinnutækifæri og mikla einangrun. Fólksfjöldi er rúmlega 200 manns. Það er því von að þeir sem fara með stjórn þessara mála reyni allt til að blása lífi í atvinnulífið á staðnum.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 13.12.2007 kl. 23:17

5 identicon

Mæli með því að þau sem áhuga hafi á málinu lesi ágæta grein Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur frá Dýrafirði hér:

 http://www.natturuverndarsamtok.is/news.asp?ID=517

Þetta er sorglegt mál og Guð gefi að þessar ætlanir Hilmars F. Foss og Ólafs Egilssonar og þeirra rússneska samstarfsfélaga Katamak-Nafta (sem hvergi er neinar upplýsingar að hafa um) nái aldrei fram að ganga.  Það er synd að heyra til þeirra sem hafa þegar fengið svartagullsglýju í augun yfir þessum hugsanlegu 500 störfum sem er veifað eins og gulrót fyrir framan nefið á þeim. 

Það verða dýr störf þegar allt verður talið og spurning hvert á að snúa sér til að finna fólk í þau, ekki er atvinnuleysinu fyrir að fara fyrir vestan.  En hér spyrja menn ekki um kostnað fyrir landið og náttúru þess um aldir heldur hvort nokkrir sveitarstjórnarmenn vestra nái endurkjöri annað kjörtímabil.  Ég legg til að Ólafur Egilsson, kanni það hjá samstarfsfólki sínu í bæjarstjórninni á Seltjarnarnesi hvort ekki er hægt að fá lóð á Nesinu undir olíuhreinsistöð. Nógu er það flatt. Kannski golfvöllurinn fáist?!

Vilborg Davíðsdóttir (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 23:19

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Góð grein hjá Ólöfu, takk Vilborg.

Ég var í langri Vestfjarðaferð í sumar og á rætur fyrir Vestan. Veðrið skartaði sínu fegursta og Ketildalirnir voru himneskir. Ég má ekki til þess hugsa að stóriðju neins konar verði troðið þarna niður og afleiðingar þess gætu verið skelfilegar fyrir Vestfirðinga til langs tíma litið. Þetta er feigðarflan og mér er hulin ráðgáta hvernig fólki dettur þetta á annað borð í hug... fyrir utan hvað allt virðist vera loðið í kringum framkvæmdina, bakhjarlana og fjárfestana.

Vonandi sjá menn að sér og hætta við.

Lára Hanna Einarsdóttir, 14.12.2007 kl. 01:34

7 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Landið hefur upp á svo margt að bjóða að það verður einhvern vegin þannig með Vestfirðina að þeir verða pínu útundan þegar ferðamenn eru annars vegar.

Ég hef átt þess kost að fara mikið þarna um og eru Vestfirðirnir því í miklu uppáhald hjá mér í dag. Enda mögnuð náttúra.

Svæðið líður fyrir að vera ekki í alfaraleið og þjóðvegur #1 krækir alveg fram hjá svæðinu sem getur svo líka verið viss kostur :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 15.12.2007 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband