Vestfirðirnir eru fallegir í vetrabúningi

Verst er hvað ákveðin svæði á íslandi verða mikið útundan hjá ferðamönnum sem koma til Íslands.

Vestfirðirnir eru gott dæmi um slíkt. Ferðamenn halda sig að mestu við þjóðveg 1 og verður því þetta fallega svæði mikið útundan. Það er eins og að það sé slökkt á ákveðnum svæðum þegar sumarið er búið og oft tilviljunum háð að það sjáist ferðamenn á slíkum stöðum yfir vetrartímann. Ferðamennirnir eru þá að mestu í Reykjavík og í ákveðnum radíus frá Reykjavík. Eins og Bláa Lónið, Gullni hringurinn og eitthvað eftir suður ströndinni og aðeins inn í Borgarfjörð.

á Vestfjörðum er að finna stórkostlega ósnorna náttúru og ein af mínum fallegustu myndum var tekin þar að vetri til í nóvember 1996. En ég fékk far með þekktum flugkappa frá Ísafirði þegar ég var að vinna að gerð Íslandsbókarinnar og tók þá þessa mynd.


Hér má sjá mynd frá Súgandafirði og Önundarfirði ásamt fjallinu Gelti. Ef klikkað er á myndina þá má skoða myndir frá Rauðasandi að sumri til (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Myndin er tekin á milli veðrakerfa og var skotist vestur kvöldið áður á bíl við erfiðar aðstæður. En sól var yfir öllum Vestfjörðunum snemma næsta morguns og gráblikan er í suðri á leið yfir svæðið með nýju úrkomubelti.

Þessi mynd er samsett úr 4 myndum. Sú tækni var óþekkt á þeim tíma og slík samsetning á myndum kallaði á öflugustu tölvur, fullt af minni og stóra harða diska. Það yrði líklega hlegið af þeim tölvum í dag ef ég færi að nefna þær til samanburðar við það sem nú er hægt að fá - en dýrar voru þær og vinnsluminnið eitt og sér var nánast jafn dýrt og sjálf tölvan :|


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

mbl.is Alhvít jörð á Ströndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Gaman af þessum myndum þínum og maður væntir fleiri slíkra. Og víst eru Vestfirðir fallegir í vetrarbúningi. En þegar sá búningur kemur svona seint að vori held ég að sú fegurð snúist upp í andstæðu sína í huga margra. Mér finnst a.m.k. fátt falllegt við vorhret af þessu tagi sem tefur allan sumargróður um marga daga ef ekki vikur.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.5.2007 kl. 09:25

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Ég á mikið magn af myndum af þessu svæði. Það hefur bara ekki unnist tími til að skanna þær inn og vinna. Þessi myndasöfnun mín og vefur hefur algjörlega verið unnið á eigin kostnað og ekki fengist styrkir frá ríki eða öðrum aðilum - það má frekar segja að stjórnvöld reyni allt til að leggja stein í götu þeirra aðila sem reyna að veikum mætti að vera með tilburði í þá átt að skapa eitthvað annað en það sem þeim sjálfum þóknast :)

Því verður þetta að koma í rólegheitunum með kalda vatninu.

Þeir sem búa þarna fyrir norðan verða víst að sætta sig við að búa á mörkum hins byggilega. Ef þú lítur á svæði sem er á sömu breiddagráðu á Grænlandi, þá getum við þó þakkað hversu mikið betra er þarna fyrir vestan.

Kjartan

Kjartan Pétur Sigurðsson, 25.5.2007 kl. 09:51

3 Smámynd: Arfi

Vestfirðir eru alltaf fallegir, sama hvort það sé snjór eður ei

/vestfjarðarstúlkan over and out

Arfi, 25.5.2007 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband